20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Ópíóðafaraldur - Faraldur sársaukans? Hvað kom fyrir þig?
Hvers vegna tekur fólk lyf?
Oftast vegna þess að það er eitthvað að, því líður ekki vel.
Hvers vegna tekur fólk verkjalyf?
Oftast vegna þess að það er með verki, eða að glíma við sársauka
Lyf geta verið lífsnauðsynleg
Ég mun aldrei ráðleggja einstaklingi að hætta að taka lyf án samráðs við lækni
Ég hef ekkert á móti lyfjum, en lyf lækna ekki áföll og streitu
Fyrir nokkrum árum vaknaði ég upp einn morgunn með mjög mikinn svima
Gat varla gengið eða haldið jafnvægi
Ég varð hrædd, óttaðist það versta
Fór á Læknavaktina
Ég var send heim með 100 stk. af T.Stemetil
2 töflur 3 sinnum á dag
Ég er upplýst, ég hef val
Las lyfseðilinn um aukaverkanir og tók aldrei þetta lyf
Aukaverkun: Einnig hefur í einstaka tilvikum verið greint frá skyndilegu dauðsfalli af óskýrðum orsökum
Ég hafði þá verið undir mjög miklu álagi um tíma
Vandamálið var ekki sviminn, einkenninn
Vandamálið var streitan, orsökin, rót vandans
Vandamálið er því ekki aðeins lyfið sem er notað
heldur sársakuinn sem er ástæðan fyrir að lyfið er tekið
Það er það sem þarf að vinna með, sársaukann
Ef læknirinn hefði spurt mig, hvað kom fyrir þig? eða hvað gerðist?
í stað þess að spyrja hvað er að þér?
þá ætti ég ekki 100 töflur af Stemetil upp í skáp
Við fæðumst saklaus
Með áföll forfeðra og formæðra okkar í genunum
Þráum ást, umhyggju og öryggi
Áföll og erfið upplifun í æsku getur haft áhrif á allt
Ekkert nýfætt barn ætlar sér að fara í neyslu
Ekkert nýfætt barn ætlar sér að taka líf sitt
Ekkert nýfætt barn ætlar sér að brjóta af sér
Á ferðalagi barnsins gerist eitthvað
sem verður til þess að það leiðist út í neyslu
fer að brjóta af sér og .... gefst upp og tekur líf sitt
Afbrot og neysla er oft birtingarmynd sársauka æskunnar
Sjálfsvíg er oft örþrifaráð sársaukans, sem komst ekki út
Ekki þarf að deyfa sig með lyfjum og efnum ef manni líður vel
Ekki þarf að berja mann og annan ef manni líður vel
Ekki þarf að taka líf sitt ef manni líður vel
Afbrot, neysla og sjálfsvíg eru birtingarmyndir sársaukans
Sársaukans sem þarf að vinna með
Að vinna með rót vandans
Stjórnvöld þurfa að fjárfesta í unga fólkinu
Fagfólk þarf að spyrja, hvað kom fyrir þig en ekki hvað er að þér
Við þurfum að tala við unga fólkið okkar en ekki bara um það
Sigrún Sigurðardóttir sigrunsig@unak.is
Höfundur er móðir þriggja einstaklinga á aldrinum 18 til 24 ára.