Ný vefmyndavél sett upp á Akureyri

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Ný vefmyndavél hefur nú verið sett upp á heimasíður Akureyrarbæjar, Akureyri.is og Halloakureyri.is. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar.

Gamla vélin var komin mjög til ára sinna en ný vél hefur verið sett upp með streymi í gegnum Youtube og því gæti fólk þurft að hreinsa út bókamerki ef það hefur vistað slóð vélarinnar niður í tölvuna hjá sér.

Vitað er að fjölmargir unnendur Akureyrar, til að mynda brottfluttir og útlendingar sem hafa á bænum miklar mætur, fylgjast grannt með fallega bænum okkar, veðri og vindum, í gegnum vefmyndavélina því kvartanir berast óðara ef streymið dettur niður.

Nýja vélin mun vonandi þjóna hlutverki sínu vel og lengi en sem áður segir er hægt að komast inn á hana í gegnum hnapp efst hægra megin á Akureyri.is og einnig á Halloakureyri.is.

Nýjast