Ný heimasíða Driftar EA í loftið

Viltu gerast Driftari !
 
Á föstudaginn 28.júní opnuðum við fyrir fyrsta hluta heimasíðu DriftarEA ,  www.driftea.is
Heimasíða DriftarEA  hefur verið opnuð formlega og nú geta bæði fyrirtæki og einstaklingar skráð sig til þátttöku í því að byggja upp nýsköpunarsamfélagið og gerst Driftarar.  
Vertu með – smelltu hér
DriftEA er sjálfstætt og óhagnaðardrifið félag sem hefur þann tilgang að byggja upp frumkvöðla- og nýsköpunarstarf á Eyjafjarðarsvæðinu. Meðal þess sem DriftEA býður upp á eru aðstaða fyrir frumkvöðla og fyrirtæki þar sem markmiðið er að stuðla að uppbyggingu og vexti á grunni nýsköpunar.
DriftEA mun vinna að því að tvinna saman nýsköpun og iðandi atvinnulíf og öflugt skólasamfélag.
Helstu áherslur í starfi DriftarEA verða: Matvælaframleiðsla, líftækni, hugbúnaður í sjávarútvegi, grænar lausnir,  heilbrigðis – og öldrunarmál.
Við höfum fundið fyrir miklum áhuga í samfélaginu á að taka þátt í uppbyggingu DriftarEA með okkur. Sérstaklega eftir fundinn sem haldin var 16. maí í Hofi. Lesa meira hér.
Nú höfum við opnað formlega fyrir þátttöku á heimasiðu DriftarEA. Við höfum svo samband við þá aðila sem skrá sig sem Driftari og tökum næstu skref með þeim. 
Einnig opnum við fyrir skráningar í Messann. Lesa meira hér.
Það er mikilvægt að nefna það að Messinn er samskomustaður skapandi og kraftmikils fólks, fyrirtækja og fræðanets. Þar tengjast  saman nýsköpun, tækni, rannsóknir og frumkvöðlar. Aðild að Messanum veitir aðgang að tengslaneti, viðburðum og vinnuaðstöðu. Þar er áhersla á að fólk, fullt af eldmóði og sköpunargleði hittist, njóti veitinga, skiptist á upplýsingum, skoðunum og fái innblástur í verkefni sín eða fyrirtæki. Meira efni kemur á heimasíðu Driftar EA í sumar og stefnum við á að hefja starfsemi í haust.
 
Þetta segir í tilkynningu frá Drift nú í morgun.

Athugasemdir

Nýjast