Norrænir vortónar í Hofi í kvöld

Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir kemur fram í Hofi í kvöld.
Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir kemur fram í Hofi í kvöld.

Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja norræna vortóna á tónleikum í Hofi í kvöld, miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20:00. Á efnisskránni verða meðal annars lög eftir Grieg, Heise, Sibelius og Stenhammar.

Þær flytja einnig þrjú lög eftir Jórunni Viðar og frumflytja tvö sönglög eftir Guðmund Emilsson, hljómsveitarstjóra.

Miðasala er á www.mak.is   

Nýjast