Norðurþing - Ný Viljayfirlýsing tefji ekki byggingu nýs hjúkrunarheimilis

Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings.
Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings.

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á þriðjudag nýja viljayfirlýsing á milli sveitarfélagana Norðurþings, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar við ríkisvaldið um breytt fyrirkomulag vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík. Hjálmar Bogi Hafliðason forseti sveitarstjórnar segir að þar sé verið að hverfa frá sameiginlegu eignarhaldi ríkis og sveitarfélaga og ákvæði um að 15% hlutur sveitarfélaganna í byggingu heimilisins og búnaði falli niður. Ráðgert er að breyta þeim ákvæðum laganna sem kveður á um þetta.

„Viljayfirlýsingin kveður jafnframt á um að lagabreytingin tefji ekki uppbyggingu hjúkrunarheimilisins,“ segir Hjálmar og bætir við að þess í stað sé farin sú leið sem kemur fram  í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis um breytt fyrirkomulag vegna hjúkrunarheimila sem kom út í nóvember 2023.

„Farin verði leiguleið þar sem framkvæmdakostnaður greiðist af eiganda/húseiganda og langtíma leigusamningur gerður við ríkisvaldið um bygginguna,“ segir Hjálmar í skriflegu svari til blaðsins.

Heilbrigðisráðuneytið og ofangreind sveitarfélög sammælast með viljayfirlýsingu þessari um að nýja leiguleiðin verði farin vegna byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík og að fyrirhugaðar lagabreytingar tefji ekki uppbyggingu hjúkrunarheimilisins. Áfram er gert ráð fyrir að nýja Hjúkrunarheimilið rísi að Skálabrekku 21 á Húsavík.

Nýjast