Minningarbekkur um Magnús og Bangsa

Bekkurinn er með þessum fallega skildi      Myndir   hlid.is
Bekkurinn er með þessum fallega skildi Myndir hlid.is

Stundum rekur á fjörur okkar skemmtilegar fréttir sem gaman er að fá  og segja svo öðrum frá þeim, þannig er um eftirfarandi frétt sem er fyrst að finna á heimasíðu hjúkrúnarheimilisins Hlíð og nú hér.

Nú á dögunum var hjúkrunarheimilinu færður bekkur til minningar um þá félaga Magnús og kisann hans Bangsa, fyrrum íbúa á Hlíð.

Magnús Ágústsson var fæddur árið 1928 á Ólafsfirði. Hann lærði húsasmíði hjá föður sínum og byggingarverkfræði í Noregi. Magnús starfaði í mörg ár hjá Akureyrarbæ. Magnús var bæði notandi í dagþjálfun og síðar íbúi á Hlíð.

Magnús Ágústsson 

 

Hann og kisinn hans Bangsi voru duglegir að fara út að ganga saman og könnuðust margir í hverfinu við þá félaga.  Það voru dætur hans þrjár sem færðu heimilinu þessa fallegu gjöf.

 

Bekkurinn er staðsettur á göngustígnum við Aspar- og Beykihlíð þar sem þeir félagar áttu heima. Hjúkrunarheimilið þakkar kærlega fyrir þessa góðu gjöf og vonast til þess að sem flestir sem eiga leið hjá nýti sér þennan fallega bekk. 

Kötturinn Bangsi


Athugasemdir

Nýjast