20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Mikið álag einkenndi starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri á liðnu ári
Rúmlega 4% fleiri dvalardagar voru á Sjúkrahúsinu á Akureyri á liðnu ári samanborið við árið 2022, en þeir voru tæplega 29.500 í fyrra.
Mikið álag hefur verið á legudeildum og rúmanýting hefur aukist töluvert. Þannig var rúmanýting á lyflækningadeild 100,4% í fyrra en ríflega 89% árið á undan. Á skurðdeild var nýtingin 96,2% en 89% árið 2022. Einnig hefur álag á geðdeild verið mikið og rúmanýting þar 84,3% samanborið við um 75% árið þar á undan.
Aukin innlögn 75 ára og eldri
Um 13% aukning var í bráðakomum einstaklinga 75 ára og eldri síðan fyrir Kóvid með tilheyrandi aukningu þessa aldurshóps í innlögn á deildir SAk að því er fram kemur í starfsemistölum fyrir liðið ár. Þar segir einnig að 6,4 einstklingar esm búnir eru í meðferð séu að meðaltali inniliggjandi á sjúkrahúsinu að bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.
Rúmlega 10.500 einstaklingar fengu þjónustu á göngudeild, þar af 2.273 vegna krabbameinslyfjagjafar samanborið við 2.180 í fyrra en þar er um 5% aukingu að ræða milli ára.
Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta rúmlega 17.900 samanborið við 16.558 á sama tíma í fyrra og því aukningin milli ára rúmlega 8%.
Skurðaðgerðir á árinu voru 2.598 og er 33,4% aðgerða bráðaaðgerðir.
Gerviliðaaðgerðir voru 330 sem er aðeins undir áætlun ársins.
Fjöldi myndgreiningarrannsókna, án brjóstamynda var um 40.300 sem gerir að meðaltali um 110 rannsóknir á dag.
Rannsóknir á rannsóknadeild voru 282 þúsund talsins á liðnu ári en þar af voru framkvæmd 269 PCR Kóvidpróf
Mikið var um ferðamenn á liðnu ári og er 27% aukningi milli ára í komum ósjúkratryggðra á bráðamóttöku. Að sama skapi er fjöldi innlagðra svipaður og í fyrra en með áberandi toppi yfir sumarmánuðina.
Á árinu voru um 6% færri fæðingar en árið á undan, árið 2023 fæddust 410 bönr samanborið við 436 börn árið á undan.