20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Mannlíf - ljósmyndasýning
ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna Mannlíf við LYST kaffihúsið á morgun föstudag.
Í þrettánda sinn bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús upp á ljósmyndasýningu við útsvæðið og veitingasöluna í garðinum. Að þessu sinni eru það Norðurorka og Menningarsjóður Akureyrar sem styrkja ÁLFkonur til sýningarinnar og stuðla þannig að ríkulegu menningarlífi í Lystigarðinum.
Að þessu sinni takast ÁLFkonur á við mannlíf og fjölbreytileg viðfangsefni fólks í hinu bjarta norðri.
ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli og hefur starfað saman sem hópur frá árinu 2010
Þær hafa haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi.
Að þessu sinni eru þátttakendur :
Agnes Heiða Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Gunnlaug Friðriksdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.
https://www.facebook.com/alfkonur
https://www.instagram.com/alfkonur/