Maðurinn enn ófundinn

Frá vettvangi     Myndir Landsbjörg
Frá vettvangi Myndir Landsbjörg

Leit stendur yfir á vettvangi við Fnjóská vestast í Dalsmynni að manninum sem féll í ána í gærkvöldi. Leitað er á fyrirfram skipulögðum, afmörkuðum stöðum og svæðum, með m.a. sérfræðingum í straumvatnsleit og búnaði.

Áfram verður leitað í dag og hefur verið óskað liðsinnis björgunarsveita á Höfuðborgarsvæðinu til að bætast í leitarhópinn.  Aðstæður á vettvangi eru erfiðar, áin er mjög lituð og leitarsvæðið víðfeðmt þegar í ósa árinnar er komið.
 
Þetta segir í tilkynningu  frá lögreglunni.
 
 

Athugasemdir

Nýjast