20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Lýst er eftir vitnum
Lögreglan á Norðurlandi eystra sendi eftirfarandi tilkynningu út fyrr í kvöld.
Klukkan 18:15 í kvöld barst lögreglu tilkynning um umferðarslys þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið og nú leitum við eftir vitnum. Þá viljum við einnig hvetja ökumanninn til þess að gefa sig fram við lögreglu.
Ef þú hefur upplýsingar um málið biðjum við þig um að hafa samband við 112 sem mun gefa þér samband við lögreglu.