20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Lokaorð oddvita Kattaframboðsins
Snorri Ásmundsson skrifar
Reykjavík verður ekki bæjarstjóri á Akureyri að þessu sinni og ég óska sigurvegurum þessa kosninga til hamingju með sigurinn.
Ég er stoltur og þakklátur þeim 4,1 % sem kusu kattaframboðið. Ég er stoltur af Kattaframboðinu og þakklátur þeim sem komu að því. Við áttum okkar sigra og getum verið ánægð.
Niðurstaða Kosninga eru skýr skilaboð því meirihlutinn ræður, því miður.
Akureyringar eru ekki tilbúnir í breytingar og líklega er almættið að segja mér að þetta sé ekki minn starfsgrundvöllur.
Ég slepp við að vera fastur á Akureyri næstu fjögur árin og frelsið er yndislegt.
Ég er þakklátur og hamingjusamur fyrir mitt hlutskipti því viðhorf mín eru ávallt lituð af þakklæti.
Takk frambjóðendur og kjósendur kattaframboðsins þið eruð blessuð og tilbúin í ævintýri og ykkar bíða góðir tímar. Þið hin eigið vonandi eftir að sjá eftir að hafa ekki kosið kattaframboðið og frelsið. En vonandi endurskoðar ný bæjarstjórn bannið við lausagöngu katta og ég óska þeim þá velfarnaðar.
Guð blessi Akureyringa
Snorri Ásmundsson
oddvit Kattaframboðsins