Listasumar hefst á Akureyri á morgun

Listasumar hefst á morgun og eru fjölbreyttir viðburðir í boði. Mynd á vefsíðu Akureyrarbæjar
Listasumar hefst á morgun og eru fjölbreyttir viðburðir í boði. Mynd á vefsíðu Akureyrarbæjar

Listasumar 2024 hefst á morgun, fimmtudaginn 6. júní og stendur hátíðin til 20. júlí. Nóg er um að vera næstu daga og vert er að nefna að flestir viðburðir Listasumars eru ókeypis.

Fyrsti viðburður Listasumars verður á Minjasafninu þar sem sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, opnar sýninguna Einstök Íslandskort – Schulte landakortin kl. 17. Boðið er upp á veitingar og tónlist tríós Kristjáns Edelstein.

Kvöldopnun verður í Listasafninu sem þar vinsælasta hljómsveit Grænlands, Nanook, heldur stutta tónleika frá kl. 19.30-20 og að þeim loknum verða tvær áhugaverðar samsýningar opnaðar. Á fimmtudagskvöld verður einnig uppá koma í Deiglunni.

Hljómsveitin Nonook leikur á Amtsbókasafninu á föstudag en þar verður sagt stuttlega frá sögu grænlenskrar tónlistar, flutt nokkur vel valin lög og tónlistarmennirnir spjalla við viðstadda.

Nóg verður um að vera á Listasumri um helgina, sem dæmi tvennir tónleikar Brasskvintett Norðurlands leikur í Lystigarðinum frá kl. 14 til 15 og tónleikarnir Sumarljóð í Hofi þar sem tónlistarkonurnar Helga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir fara með áheyrendur í svolítið tónlistarferðalag og staldra einna helst við sumarið.

Fjölbreyttar smiðjur fyrir krakka hefjast á mánudag, 10. júní.

Fornbílahittingarnir verða á sínum stað á miðvikudagskvöldum við Hof og í júlí verða einnig þrennir sumartónleikar Akureyrarkirkju. Enn eru að bætast við viðburðir á Listasumri en yfirlit má finna á vefsíðunni listasumar.is. Þetta kemur fram á vefsíðu Akureyrarbæjar.

Nýjast