Líkur á talsverðri svifryksmengun á Akureyri í dag
Nú er hægur vindur, kalt í veðri og götur þurrar og því má búast við að svifryksmengun á Akureyri fari hækkandi í dag og gæti farið yfir heilsuverndarmörk. Spáð er auknum vindi og úrkomu á morgun sem ætti að draga úr svifryksmengun.
Íbúar eru hvattir til þess að draga úr akstri eins og kostur er. Til dæmis með því að nýta sér almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni fjölfarinna umferðagatna. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Hægt er að fylgjast með mælingum á styrk svifryks og annarra mengunarefna á vefnum loftgæði.is.