27. nóvember - 4. desember - Tbl 48
Líf í lundi
Á morgun laugardag verður haldinn útivistar- og fjölskyldudagur í skógum á 18 stöðum um allt land undir merkinu Líf í lundi.
Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga efnir til samverustundar á einum af þessum stöðum, hinum fallega Fossselsskógi. Skógurinn er sunnan við bæinn Vað, á leið frá Kinn yfir í Aðaldal. Gestum verður kynnt aðstaðan í skóginum, gengið um skóginn, staðkunnugir veita fræðslu og boðið upp á þrautir fyrir börnin.
Markmið dagsins er að fá almenning til að heimsækja skóga landsins og hreyfa sig, njóta samveru og upplifa skóga og náttúru. Í boði verða fjölbreyttir viðburðir um land allt, bæði rótgrónir viðburðir eins og Skógardagurinn mikli og Skógardagur Norðurlands og nýir viðburðir sem skipulagðir hafa verið í samstarfi margra. Að deginum standa Skógræktarfélag Íslands ásamt aðildarfélögum sínum, Skógræktin og Landssamtök skógareigenda, í samvinnu við önnur félagasamtök og stofnanir.
Einnig er boðað til fagnaðar í hinum rómaða Vaglaskógi. Vaglaskógur er einn af höfuðskógum Íslands og býður upp á frábæra aðstöðu til útivistar og samveru. Margt verður í boði og tilvalið að gera sér glaðan dag í fallegu umhverfi.
Dagskrá:
Kl. 10:00 – ca. 12:30 Ganga á Hálshnjúk undir leiðsögn Hermanns Herbertssonar
(Hist á bílastæði við upphaf gönguleiðar við efri-Vagli)
Kl. 14:30-15:30 Skógarganga – fuglarnir í skóginum, leiðsögn Sverrir Thorstensen.
Kl. 15:30-16:30 Sýning á skúlptúragerð með keðjusög
Kl. 14:00-17:00 Flautugerð, tálgun, frisbígolf, bogfimi, leikir fyrir börn í umsjón skátanna.
Veitingar: Skógarkaffi, lummur, pinnabrauð, poppað yfir eldi.