Líður loks að frumsýningu

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Skugga Svein í Samkomuhúsinu föstudaginn 11. febrúar. Það er loksins komið að því að þessi sýning sem margir hafa beðið í ofvæni eftir verði sýnt Norðlendingum en áður hefur frumsýningu verið frestað vegna Covid-19.

Skugga Sveinn, hér í nýrri og ferskri útgáfu, er bráðskemmtilegt verk um einn þekktasta útlaga Íslands og baráttu hans við laganna verði.

Lárensíus sýslumaður á þann draum heitastan að klófesta útilegumanninn Skugga Svein og lið hans enda Skugga Sveinn stórglæpamaður, þjófur og morðingi. En heldur vandast málið þegar dóttir Lárensíusar verður ástfangin af einum útilegumannanna og gerir hvað hún getur til að frelsa hann frá fangelsun og dauða. Hefst þá spennandi atburðarrás og barátta á milli ástar og haturs, réttlætis og ranglætis.

Skugga Sveinn eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson var eitt þekktasta og vinsælasta leikverk á Íslandi um áratuga skeið og litríkar persónur þess, Grasa Gudda, Gvendur smali og Ketill skrækur hafa lifað með þjóðinni og tekið sér bólfestu í hjarta hennar.

Jón Gnarr leikur Skugga Svein. Í öðrum hlutverkum eru Björgvin Franz Gíslason, Sunna Borg, María Pálsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Vala Fannell og Vilhjálmur B Bragason. 

Leikstjóri er Marta Nordal. Búningar eru í höndum Björg Mörtu Gunnarsdóttur. Tónsmíði og tónlistarútsetningar eru í höndum Sævars Helga Jóhannssonar, söngtextar eru eftir Vilhjálm B. Bragason, ljósahönnuður er Ólafur Ágúst Stefánsson, hljóðhönnuður er Gunnar Sigurbjörnsson. 

Nýjast