Leiktæki endurspegla sköpunargáfu og sjálfbærni

Nemendur tóku þátt í öllum þáttum verksins, allt frá hönnun og til þess að koma þeim fyrir á skólaló…
Nemendur tóku þátt í öllum þáttum verksins, allt frá hönnun og til þess að koma þeim fyrir á skólalóðinni. Myndir á vefsíðu Hrafnagilsskóla

Nemendur sem nú eru í  8. bekk í Hrafnagilsskóla hafa lokið við verkefni sem þeir hófu á liðnu ári, þá í 7. bekk en það fólst í að setja upp ný útileiktæki á skólalóðinni fyrir yngstu nemendur skólans.Verkefnið unnu nemendur undir leiðsögn smíðakennara síns Rebekku Kühnis.

Nemendur tóku þátt í öllum þáttum verksins, allt frá hönnun og til loka þess sem fólst í að saga, bora, mála og setja leiktækin saman. Leiktækin, sem eru að miklu leyti gerð úr endurnýttum dekkjum, endurspegla bæði sköpunargáfu og sjálfbærni. Fengu þeir við þetta verkefni tækifæri til að vinna með margvísleg verkfæri, svo sem sting- og bandsagir undir eftirliti Rebekku.

Yngstu nemendurnir höfðu beðið spenntir eftir leiktækjunum og hæstánægðir þegar verki var lokið og tækin komin upp á skólalóðinni. Mikil ásókn er í að prófa tækin, en þarna má m.a. finna hest úr dekkjum, skemmtilegt farartæki og mörgæs sem er skotskífa fyrir boltaleiki.

 

 

Nýjast