20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Laugardagsgrautur í Hrísey er skemmtileg hefð
mth@vikubladid.is
„Þetta er góð og skemmtileg hefð sem mörgum þykir ómissandi,“ segir Ásrún Ýr Gestsdóttir verkefnastýra hjá Áfram Hrísey, en í eyjunni hefur sú hefð skapast að íbúar koma saman í hádeginu fyrsta laugardag í hverjum mánuði yfir vetrarmánuði og snæða saman mjólkurgraut.
Ferðamálafélag Hríseyjar stendur fyrir þessari sameiginlegu máltíð og hefur gert frá árinu 2008, en í fyrsta sinn bauð félagið upp á graut 19. apríl árið 2008. Grautarhádegið féll niður á meðan kórónuveiran geysaði en var tekið upp nú þegar haustið gekk í garð og stefnt að því að verði í boði i vetur.
Á tíu ára afmæli grautarhittingsins voru teknar saman nokkrar tölur varðandi matargerðina, en þá hafði grautur verið soðin úr 107 kílóum af hrísgrjónum og 756 lítrar af mjólk notaðar útá og með. Sú tala eru orðin talsvert hærri en liggur ekki á lausu. Að meðaltali koma tæplega 50 manns í graut hvern laugardag, en fjölmennustu grautardagar eru fyrir jólin þegar möndlugrautur er í boði og eins dregur þorrablótsgrauturinn að sér fjölda gesta.