20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Keppni í ritlist meðal ungmenna
Í framhaldi af ritlistasmiðjunni Ungskáld sem fram fór í VMA nýverið er nú efnt til ritlistakeppni sem er opin öllum ungmennum á aldrinum 16-25 ára. Ekki er skilyrði að hafa tekið þátt í ritlistasmiðjunni þótt vonir standi til að þátttaka þar komi að góðum notum. Í ritlistakeppninni verða veitt peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin.
Engar hömlur eru settar á texta, hvorki varðandi efnistök né lengd en þurfa að vera á íslensku. Skilafrestur á innsendum verkum er til og með 16. nóvember sem er dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Þátttakendur senda skrif sín á netfangið ungskald@akureyri.is. Tilkynnt verður um sigurvegara í keppninni við sérstaka athöfn á Amtsbókasafninu á Akureyri fimmtudaginn 6. desember nk.
Á vef Akureyrarbæjar segir að markmiðið með verkefninu sé að efla ritlist og skapandi hugsun hjá ungu fólki á aldrinum 16-25 ára því að kostnaðarlausu. Verkefnið Ungskáld hefur verið við lýði á Akureyri í nokkur ár og er það eina sinnar tegundar á landinu. Að verkefninu standa Akureyrarstofa, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Menntaskólinn á Akureyri, Ungmennahúsið í Rósenborg og Amtbókasafnið.