Kemur til greina að rífa Borgarbíó

Borgarbíó. Mynd úr safni
Borgarbíó. Mynd úr safni

Verktakafyrirtækið BB Byggingar hefur keypt húsnæði Borgarbíós í miðbæ Akureyrar. Það er vefmiðillinn akureyri.net sem greinir frá þessu en þar segir að fyrirhuguð sé töluverð uppbygging á staðnum og stefnt sé að því að á lóðinni verði bæði íbúðarhúsnæði og verslunar- þjónusturými.

Haft er eftir Birni Ómari Sigurðarsyni, eigandi og framkvæmdastjóra BB Bygginga, að enn sé ekki ljóst hvernig staðið verði að málum. „Ein hugmyndin er að rífa húsið og byggja nýtt frá grunni,“ segir hann við Akureyri.net. 

Nýjast