20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna 2023-24
KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna eftir stórkostlegan 2-3 endurkomusigur að Varmá. Stelpurnar lentu 2-0 undir en sneru enn einum leiknum sér ívil og standa uppi sem Íslandsmeistarar þriðja árið í röð!
Leikurinn var eins að hinir þrír í þessari rimmu félagana, hart barist og ekkert gefið eftir. Bæði lið voru mjög vel að þvi komin að leika til úrslita og blakið sem sýnt var í úrslitunum oft á tíðum frábært og báðum liðum til sóma. Lið Aftureldingar er einstaklega gott í þvi að bjarga sér úr vandræðum. virkilega gott blaklið þar á ferð.
KA vann í dag þriðja Íslandsmeistaratili sinn i röð sem verður að teljast frábært, liðið er gríðarlega öflugt, vörnin er öflug og sóknir liðsins eru ótrúlega beittar.
Þær eru svo sannarlega vel að titlinum komnar KA stelpur og ástæða til þess að óska þeim, þjálfara þeirra Miguel Mateo Castrillo, og stjórn blakdeildar innilega til hamingju með glæsilegan árangur.