Jólablað Skarps kemur út í dag
Enn eitt Jólablað héraðsfréttablaðsins Skarps lítur nú dagsins skammvinna ljós. Og samkvæmt hefð sem skapast hefur, þá er einkum litið til fortíðar í þessu blaði og jafnvel fjarlægrar fortíðar, þar sem segir frá heimsókn enskrar hefðarkonu til Húsavíkur árið 1879.
Sigurjón Jóhannesson ritar stórfróðlegan þátt um Guðmund Hofdal Sigurjónsson, Mývetninginn og íþróttagarpinn sem átti ævintýralega æfi og var að síðustu geymdur í frystigeymslu Kaupfélags Þingeyinga í fimm mánuði árið 1967.
Skemmtileg og hnyttin er sagan af því þegar Húsvíkingar hugðust henda Byron lávarði á haugana, en hálfviti kom í veg fyrir þann gjörning.
Erla Jónsdóttir, fyrrverandi bókavörður í Kópavogi, ritar fróðlegan og þjóðlegan pistil um heimilisiðnað í Breiðuvík á Tjörnesi á 19. öld.
Forvitnileg er jólakrítík höfundar sem kallar sig Ebba Skrögg. Greint er frá frumlegri jólapiparkökuhúsagerð tónlistarmannsins Guðna Bragasonar. Og sitthvað fleira smálegt er að finna á síðum Jólablaðsins 2016 og fastir liðir þar eins og venjulega. JS