20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Jarðhitaleit stendur yfir við Ytri-Haga í Dalvíkurbyggð
Jarðhitaleit á vegum Norðurorku stendur um þessar mundir yfir á svæðinu við Hauganes og nágrenni. Þrír áratugir eru frá upphafi jarðhitaleitar á því svæði.
Upphaf jarðhitaleitar í og við Ytri Vík hófst árið 1994 að frumkvæði landeiganda Ytri Víkur, Sveins Jónssonar í Kálfskinni. Í framhaldinu voru boraðar þrettán grunnar hitastigulsholur í landi Ytri Víkur, Víkurbakka, Sólbakka og Syðri Haga. Haustið 1996 var svo hola YV-14 boruð sem er 182 m djúp og heppnaðist vel þar sem hún gaf 10 l/s í sjálfrennsli af um 77°C heitu vatni. Heitt vatn úr YV-14 var notað á nærliggjandi bæjum en einnig var lögð lögn að Kálfsskinni og Hátúni.
Norðurorka keypti jarðhitaréttindin og hitaveituna árið 2015 og í kjölfarið var ný vinnsluhola YV-20 boruð haustið 2017 þar sem eldri vinnsluhola var orðin ónothæf. Holan er 264 m djúp og heppnaðist vel þar sem hún gaf við borlok 12,9 l/s af 84°C heitu vatni í sjálfrennsli. Hola YV-20 er í dag notuð sem vinnsluhola fyrir hitaveituna á svæðinu. Ákveðið var að kenna nýja vinnslusvæðið við Ytri Haga en það er gamalt eyðibýli í landi Syðri Haga.
Áframhaldandi rannsóknir
Íslenskar Orkurannsóknir (ÍSOR) hafa í samstarfi við Norðurorku séð um áframhaldandi rannsóknir á svæðinu og framkvæmt meðal annars segulmælingar á yfirborði og á sjó. Allt bendir til þess að hægt sé að vinna mun meira heitt vatn á svæðinu og stendur til að bora djúpa vinnsluholu að því er fram kemur á vefsíðu Norðurorku. Til þess að staðsetja hana sem best var ákveðið samkvæmt ráðleggingum ÍSOR að bora tvær 500 m djúpar rannsóknarholur og er önnur í landi Syðri Haga en hin í landi Sólbakka. Norðurorka samdi við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um borun holanna en borun hófst í byrjun desember 2023 og stendur enn yfir. Báðar holurnar eru boraðar með 10°C halla.
Lítið er vitað um framtíðarafkastagetu svæðisins að Ytri Haga að svo stöddu. Hola YV-20, sem nú þegar er í notkun gefur 12,9 l/s af 84°C heitu vatni í sjálfrennsli. Til samanburðar má nefna að hámarksdæling vinnslusvæðisins á Hjalteyri (sem er helsta vinnslusvæði Norðurorku) 215 l/s en það svæði er sérlega gjöfult.
Ef áætlanir ganga eftir verður byggð dælustöð og tankur í landi Syðri Haga og þaðan lögð lögn til Hjalteyrar til að koma vatninu áfram til Akureyrar og nágrannasveitarfélaga.