Jafnréttisáætlun Háskólans á Akureyri fyrir árin 2025-2028
Jafnréttisáætlun Háskólans á Akureyri fyrir árin 2025-2028 var samþykkt af Háskólaráði í lok nóvember á liðnu ári og af Jafnréttisstofu um miðjan desember síðastliðinn.
Jafnréttisráð skólans leiddi vinnuna. Hlutverk þess er að hafa frumkvæði og eftirlit með jafnréttisáætlun skólans í samráði við stjórnendur. Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur við RHA, starfar fyrir ráðið.
Þátttakendur fylgjast grannt með
18% af erlendum uppruna
Hildur Friðriksdóttir er formaður Jafnréttisráðs, hún segir að við vinnuna og samráðið hafi verið horft til þess hversu mikill fjölbreytileikinn er orðinn við skólann. „Nú eru um 18% starfsfólks við akademíuna af erlendum uppruna sem er gleðilegt enda sýnir það aðdráttarafl skólans fyrir framúrskarandi starfsfólk alls staðar að. Við fengum til liðs við okkur IRPA ráðgjöf sem leiddi okkur í gegnum vinnustofur og ítarlegt samráð ásamt því að aðstoða okkur við uppsetningu áætlunarinnar.“
Áætlunin er aðgengileg á unak.is, á íslensku og ensku og á næstunni verður hún kynnt vel ásamt því að sett verður upp mælaborð á innri vef þar sem hægt verður að fylgjast með framgangi hennar.
Silja Rún Friðriksdóttir, forseti SHA og Ragnheiður Rós Kristjánsdóttir, fjármálastjóri SHA tóku virkan þátt í vinnustofunni