Inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar HÍ nú einnig á Akureyri

Háskóli Íslands mun í ár í fyrsta sinn bjóða upp á inntökupróf í læknisfræði, sjúkraþjálfunarfræði og tannlæknisfræði bæði í Reykjavík og á Akureyri. Prófin fara fram dagana 5. og 6. júní nk.
,,Ég er ánægð með að rektor hafi tekið málið upp og fylgt því eftir en við höfum verið í samtali frá því ég lagði fyrirspurn fram um það. Þetta skiptir landsbyggðirnar miklu. Það eru oft litlu málin sem velta þungu hlassi og í þessu tilfelli erum við að mæta fólki og efla tækifæri þeirra óháð búsetu" sagði Ingibjörg Isaksen í stuttu spjalli við vefinn.
Ingibjörg Isaksen (B)
Inntökupróf í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði hafa verið haldin um langt árabil og umsækjendur um tannlæknisfræði þreyta nú sama próf í þriðja sinn.
Til þess að koma betur til móts við nemendur víða um land sem hafa áhuga á að þreyta prófið hafa Læknadeild og Tannlæknadeild nú ákveðið að bjóða upp á inntökupróf á Akureyri í fyrsta sinn.
Það verður haldið í Háskólanum á Akureyri á sama tíma og umsækjendur þreyta prófið í Háskóla Íslands. Allir þátttakendur þreyta prófið í rafræna prófakerfinu Inspera og umsjón með prófunum á báðum stöðum verður í höndum prófaskrifstofu Háskóla Íslands.
Að þessu sinni verða 75 umsækjendur teknir inn í læknisfræði og 40 í sjúkraþjálfunarfræði. Þá verður allt að 40 nemendum boðið að hefja nám í tannlæknisfræði í haust.
Sækja þarf um að þreyta inntökuprófið fyrir 20. maí en allar nánari upplýsingar um prófið er að finna á vefsíðu þess.