Dagskráin 26. febrúar - 5. mars Tbl 8
Erfiðar aðstæður í rekstri Kjarnafæðis Norðlenska á liðnu ári
Tap Kjarnafæðis Norðlenska nam um 250 milljónum króna á liðnu ári sem er mikil breyting á afkomu félagsins þegar miðað er við árið 2023 en þá var hagnaður af rekstinum.
Stærstu áhrifaþættir versnandi afkomu eru miklar kostnaðarhækkanir á aðföngum, launum og þjónustu segir í tilkynningu. Félagið tók þátt í viðleitni atvinnulífsins til að ná tökum á verðbólgu á Íslandi og hækkaði verð á sínum framleiðsluvörum að meðaltali minna en almenn verðlagsþróun og kostnaðarhækkanir gáfu tilefni til. Þá voru vaxtagjöld á árinu um 512 milljónir króna, sem er aukning upp á 47 milljónir króna frá árinu áður. Veldur þar hærra vaxtastig og hærri staða afurðalána vegna verðhækkana til bænda.
Hagræðingaraðgerðir stöðvuðust í kjölfar dóms
Forsenda þess að talið var unnt að stilla verðbreytingum mjög í hóf á sama tíma og afurðaverð til sauðfjárbænda í sláturtíð 2024 hækkaði um 12% samanborið við fyrra ár, voru áætlanir um hagræðingu sem breytingar á búvörulögum frá því í apríl 2024 gerðu mögulega. Tekin var ákvörðun um að greiða hluta væntrar hagræðingar út til neytenda og bænda fyrirfram, en ætlunin var að hefja hagræðingaraðgerðir í lok árs 2024. Í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í nóvember 2024 og tilmæla Samkeppniseftirlitsins, stöðvuðust allar stærri hagræðingaraðgerðir með tilheyrandi tjóni fyrir félagið.
Hefur áhrif á getu félagsins
Tilkynnt var í fyrrasumar að Kaupfélag Skagfirðinga hefði keypt Kjarnafæði Norðlenska. „Sú óvissa sem skapast hefur um heimildir til hagræðingar hefur haft veruleg truflandi áhrif á rekstur félagsins og ljóst að ef ekki verður unnt að hagræða verulega í rekstri, umfram það sem þegar hefur verið gert, mun það hafa neikvæð áhrif á getu félagsins til að halda aftur af verðhækkunum og draga úr greiðslugetu þess til bænda,“ segir í tilkynningu.