Ingvar hættur sem formaður KA

Ingavar Gíslason. Mynd: KA.is
Ingavar Gíslason. Mynd: KA.is

Ingvar Gíslason hefur tekið þá ákvörðun um að stíga til hliðar sem formaður KA frá og með deginum í gær. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ingvari á vef KA í gær.

„Kæru félagar, mér þykir það miður að tilkynna um, að vegna utanaðkomandi aðstæðna verð ég að stíga til hliðar sem formaður KA frá og með deginum í dag. Ég hef farið þess á leit við varaformann okkar Eirík S. Jóhannsson að hann taki við stjórn félagsins fram að aðalfundi KA, en hann er fyrirhugaður 6. apríl næstkomandi. Að auki liggur þá fyrir að varamaður okkar í aðalstjórn, Vignir Már Þormóðsson, taki sæti mitt í stjórn félagsins. Að sjálfsögðu verð ég þeim báðum sem og stjórninni allri innan handar með yfirfærslu á þeim verkefnum sem ég hef haft á minni könnu,“ segir í yfirlýsingunni.

Ástæðu þess að Ingvar stígur til hliðar segir hann þá að maki hans er kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn Akureyrar en maki Ingvars er Hilda Jana Gísaladóttir.

„Á undanförnum vikum hefur það orðið ljóst að því miður fer það ekki saman að veita stóru félagi eins og KA er forystu, jafnvel þótt um sjálfboðastarf sé að ræða, á sama tíma sem maki minn er kjörinn fulltrúi í sveitastjórn. Ég tel það farsælast fyrir KA, mig sjálfan og fjölskyldu mína, að ég stígi til hliðar sem formaður KA á þessum tímapunkti. Sem fyrr mun ég vinna ötullega að framgangi okkar ástkæra félags en á öðrum vettvangi,“ skrifar Ingvar

Nýjast