20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Indverska geimvísindastofnunin verðlaunuð á Húsavík
Landkönnunarverðlaun Leifs Eiríkssonar voru veitt í níunda sinn af Könnunarsafninu á Húsavík í dag. Indverska geimvísindastofnunin ISRO hlaut verðlaunin fyrir Chandrayaan-3 leiðangur sinn að suðurpóli tunglsins. Sendiherra Indlands á Íslandi, Balasubramanian Shyam, tók við verðlaununum frá safninu fyrir hönd ISRO, en Sreedhara Somanath forstjóri geimvísindastofnunarinnar flutti að því loknu ávarp frá Bangalore á Indlandi.
Safnið verðlaunaði einnig geimfarann Kellie Gerardi sem flaug í síðasta mánuði í geimfari Virgin Galactic, tunglfarann Bill Anders og rithöfundinn og vísindakonuna Libby Jackson .