Hvað má og hvað má ekki – nýir leiðarvísar fyrir ferðafólk

Eftir góðar viðtökur á Svalbarða og Grænlandi, hafa sjö bæjarfélög á Íslandi nú þróað staðbundna leiðarvísa til þess að bæta gestamóttöku. Leiðarvísarnir fara í loftið í þann mund er skemmtiferðaskipin hefja komur sínar til Íslands á ný. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Húsavíkurstofu.

AECO aðstoðaði við skipulagningu á vinnustofum um staðbundna leiðarvísa (e. Community Specific Guidelines), í mars og apríl, á austur-, norður- og s-austurlandi. Samtals fimm vinnustofur voru skipulagðar og haldnar af bæjarbúum á Akranesi, Húsavík, Djúpavogi, Hrísey og Grímsey. Tilgangur vinnustofanna var að setja ferðaþjónustuna á dagskrá og þróa leiðarvísa með staðbundnum leiðbeiningum, upplýsingum og ráðleggingum fyrir gesti.

Fyrsti, og hingað til eini, staðbundni leiðarvísirinn var þróaður af bæjarbúum á Seyðisfirði árið 2019. Aðalheiður Borgþórsdóttir, sem þá var bæjarstjóri á Seyðisfirði, er með skýr skilaboð varðandi leiðarvísirinn: „Þessi aukning í komum skemmtiferðaskipa hefur valdið áhyggjum hjá bæjarbúum, þess vegna var svo gott að boða bæjarbúa á fund og vinna þessar leiðbeiningar í sameiningu. Það gekk mjög vel. Leiðarvísirinn hjálpar okkur að fræða gestina sem koma til Seyðisfjarðar“.

Staðbundnir leiðarvísar eru verkfæri sem þróað var árið 2017 af Cruise Iceland, Visit Greenland, Visit Svalbard, The Northen Norway Tourist board og AECO með fjármagni frá Norræna Atlantssamstarfinu (NORA). Þessir samstarfsaðilar þróuðu almennan leiðarvísi fyrir svæðin á N-Atlantshafi, sem og skapalón fyrir staðbundna leiðarvísa. Fyrsti staðbundni leiðarvísirinn leit svo dagsins ljós í Longyerbyen, Svalbarða, árið 2018. Þá var hafist handa við að þróa staðbundna leiðarvísa á fleiri stöðum, en í allt urðu til 12 staðbundnir leiðarvísar árið 2018 og 2019 á Svalbarða, Grænlandi, Kanada og Noregi.

Hvernig á að vera tillitsamur gestur

Staðbundnir leiðarvísar veita gestum hjálpleg tilmæli áður en komið er á hvern stað. Þeir innihalda ábendingar um hvert sé best að fara og ráð um hvernig eigi að vera tillitsamur gestur. Meðal annars hvetur leiðarvísirinn gesti til að njóta bæjarins og landslagsins, en láta gróður, dýr og menningararf ósnortna. Gestum er bent á að biðja um leyfi áður en þeir taka myndir af bæjarbúum, og að gægjast ekki inn um glugga. Leiðarvísirinn bendir einnig á merkisverða staði og gönguleiðir.

Elías Bj. Gíslason, Forstöðumaður Gæða- og Þróunarsviðs hjá Ferðamálastofu er afar ánægður með samstarfið við AECO og fagnar komu ferðafólks til Íslands.

            „Það mikilvægasta í ferðaþjónustu, líkt og í lífinu sjálfu, er traust. Traust milli bæjarbúa, gesta og fyrirtækja í ferðaþjónustu. Það er því afar mikilvægt fyrir bæjarfélögin að búa til leiðbeiningar fyrir gesti og ferðaþjónustufyrirtæki sem eru vel kynntar. Það er ánægjulegt að sjá þá áherslu og fyrirhöfn sem AECO leggur í að skapa þessar leiðbeiningar fyrir meðlimi sína, til þess að byggja upp traust milli þeirra, gestanna og bæjarbúanna. Það er einmitt þess vegna að Ferðamálastofa vildi vinna með AECO í það búa til leiðarvísa, í þessu NORA verkefni sem fjármagnað var af Norrænu Ráðherranefndinni.“

Eignarhald bæjarbúa er lykilatriði

Allir þeir leiðarvísar sem búnir voru til á Íslandi, voru gerðar af bæjarbúum, eftir skapalóni og með aðstoð frá samtökum leiðangursskipa á norðurslóðum (AECO).

Ilja Leo Lang, Verkefnastjóri samfélagsþátttöku hjá AECO, sem hefur unnið að gerð leiðarvísanna segir að „framtak og þátttaka bæjarbúa við gerð leiðarvísanna er lykillinn að velgengni. Það hefur verið hreint ótrúlegt að vera vitni vinnusemi bæjarbúa í þessu ferli. Ef ég hef lært eitthvað af vinnustofunum þá er það mikilvægi þess að koma fólki saman og skapa rými til þess að ræða ferðaþjónustu, hvað má og hvað má ekki – og að sjá hvernig slíkar umræður skapa betri skilning, meiri þátttöku og eignarhald.“

Gyða Guðmundsdóttir, Sérfræðingur í samfélagsþáttöku hjá AECO, með áherslu á Ísland, segir að útgerðir leiðangursskipa séu að vinna að því að byggja upp góð sambönd við bæjarbúa.

            „Það er ánægjulegt að sjá góð samskipti og samvinnu milli bæjarfélaga og fyrirtækja í leiðangurssiglingum. Það er svona sem við tryggjum að leiðangursskipin séu velkomin í dag, og til frambúðar.

AECO hefur innleitt margar leiðbeiningar, staðla og verkfæri til þess að tryggja umhverfisvænar, öruggar og tillitssamar leiðangurssiglingar á Íslandi. Þar má nefna rakningu skipa, mat á starfsfólki um borð og eftirlit, auk þess að þróa staðbundna leiðarvísa á Svalbarða, Grænlandi, Kanada og Noregi. Það er frábært að sjá fleiri bæjarfélög á Íslandi taka þetta verkfæri í notkun og gera að sínu.

Nýjast