Hugleikur Dagsson heldur fyrirlestur í Listasafninu

Hugleikur Dagsson fer yfir 15 ára feril sinn sem sjálfstætt starfandi höfundur myndasagna, leikrita,…
Hugleikur Dagsson fer yfir 15 ára feril sinn sem sjálfstætt starfandi höfundur myndasagna, leikrita, sjónvarpsþátta og uppistands.

Á morgun, þriðjudaginn 7. nóvember kl. 17-17:40 heldur Hugleikur Dagsson Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Hugleikir. Á fyrirlestrinum mun hann fjalla um 15 ára feril sinn sem sjálfstætt starfandi höfundur myndasagna, leikrita, sjónvarpsþátta og uppistands. Hugleikur útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2002. Aðgangur er ókeypis.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri. Síðasti fyrirlestur ársins heldur bandaríska myndlistarkonan Jessica Tawczynski, þriðjudaginn 14. nóvember. Fyrirlestraröðin hefst að nýju um miðjan janúar 2018.

Nýjast