HSN kaupir fyrsta 100% rafbílinn

Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða tók við Volvo bifreiðinni. Mynd/HSN
Þórhallur Harðarson, framkvæmdastjóri fjármála og stoðsviða tók við Volvo bifreiðinni. Mynd/HSN

Heilsugæslustöðin á Akureyri, HSN keypti á dögunum sinn fyrsta 100% rafmagnsbíl. Hann er af gerðinni Volvo XC40.  Fyrir á HSN sex MMC Outlander tengiltvinnbíla.

Búið er að panta Ŝkoda smájeppa sem er 100 % rafdrifinn og verður afhentur í byrjun sumars. Þessi kaup eru hluti af orkuskiptum á bílaflota HSN og liður í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Nýjast