13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Hóta að loka Hlíð á Akureyri
Bæjarráð Akureyrar tók á fundi i morgun fyrir bréf frá Slökkviliði Akureyrar þar sem varað er við yfirvofandi lokun Austubyggðar 17 (Dvalarheimilisins Hlíðar) vegna ágalla á eldvörnum í húsnæðinu.
Bæjarráð lítur ábendingar í eldvarnaskoðun slökkviliðsins alvarlegum augum og áréttar að við þeim verður brugðist án tafar. Um leið er gerð sú skilyrðislausa krafa að ríkið og/eða Heilsuvernd ehf. greiði kostnaðinn við þau verk sem þarf að vinna.
Ótækt er að Akureyrarbær beri einn kostnað af óhjákvæmilegu viðhaldi og nauðsynlegum endurbótum á húseignum sem ríkið hefur afhent þriðja aðila til ráðstöfunar endurgjaldslaust án samráðs við Akureyrarbæ sem er skráður eigandi húsnæðisins.
Er bæjarstjóra jafnframt falið að kanna lagalega stöðu Akureyrarbæjar varðandi eignarhald á húsinu.