20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Höldur fagnar 50 árum og býður til afmælishátíðar
Höldur ehf. fagnar 50 ára afmæli í ár og í tilefni þeirra tímamóta verður blásið til afmælishátíðar fyrir alla fjölskylduna nú á laugardag, 15. júní. Hátíðin fer fram hjá bílasölu fyrirtækisins að Þórsstíg 2 og stendur yfir á milli kl. 13 og 16.
Tónlistarmennirnir KK og Birkir Blær troða upp, auk þess sem DJ Lilja heldur uppi fjörinu. Þá fer fram glæsileg bílasýning, hoppukastalar verða í boði fyrir börnin, Blaðrarinn mætir á svæðið og gerir ýmsar fígúrur úr blöðrum auk þess sem hægt verður að vinna glæsilega vinninga í skemmtilegum gjafaleik. Boðið verður upp á ýmsar veitingar, grillaðar pylsur, ís fyrir börnin, auk veglegrar afmælistertu.
Stækkandi bílafloti og margs konar rekstur
Stofnendur Hölds voru bræðurnir Birgir, Skúli og Vilhelm Ágústssynir en upphaf að rekstrinum má þó rekja mun lengra aftur í tímann, eða til ársins 1966 þegar Skúli keypti sér fimm bíla og hóf að leigja þá út.
Fyrirtækið Höldur var stofnað þann 1. apríl 1974 og tók þá yfir allan þann rekstur sem bræðurnir voru búnir að koma sér í. Við stofnun fyrirtækisins voru bílaleigubílarnir orðnir 40 og starfsmenn þess hátt í 40. Ári síðar, eða 1. apríl 1977 var útibú bílaleigunnar opnað í Reykjavík og sá Baldur, elsti bróðirinn um rekstur þar allt fram til ársins 2003. Í kjölfarið fylgdu útibú víða um land.
Næstu árin og áratugina óx fyrirtækinu fiskur um hrygg. Bílafloti fyrirtækisins stækkaði jafnt og þétt, auk þess sem fyrirtækið kom að ýmis konar rekstri. Þar má nefna rekstur flugfélags, veitingastaða, verslana og veganesta svo eitthvað sé nefnt.
Eigendaskipti og bílaleigan sett í forgrunn
Í apríl 2003 skipti fyrirtækið um eigendur þegar stofnendur Hölds seldu félagið til nokkurra lykilstarfsmanna með þá Steingrím Birgisson, Bergþór Karlsson og Baldvin Birgisson sem stærstu eigendur. Í framhaldi af eigendaskiptunum var mörkuð sú stefna að setja rekstur bílaleigu og bílaþjónustu í forgrunn og seldi fyrirtækið í framhaldinu frá sér annan rekstur.
Höldur hefur alla tíð lagt mikla áherslu á góðan starfsanda og við eigendaskiptin árið 2003 sagði fráfarandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Skúli Ágústsson, á árshátíð Hölds:
„Við lítum á fyrirtækið okkar sem eina góða samheldna fjölskyldu. Við lítum ekki á okkur sem stóra eða merkilega eigendur, heldur eru allir sem starfa hjá okkur hluti af okkar fjölskyldu.“
Um 8000 bílar í rekstri
Í dag rekur Höldur ehf. Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla í rekstri og starfsstöðvar víðsvegar um landið og starfsmannafjöldinn er á bilinu 280-350 eftir árstíma.
Höfuðstöðvar Hölds eru á Akureyri og þar rekur fyrirtækið einnig öfluga bílaþjónustu sem samanstendur af dekkjaverkstæði ásamt bílaþvottastöð við Glerártorg, bílasölu með nýja og notaða bíla að Þórsstíg 2 ásamt vel útbúnu bíla og- tjónaviðgerðaverkstæði í 2300 fermetra húsnæði að Þórsstíg 4.