Hilmir Jensson og Ingibjörg Huld Haraldsdóttir ráðin til LA

Hilmir Jensson
Hilmir Jensson

Hilmir kemur til starfa í upphafi næsta leikárs. Hilmir Jensson útskrifaðist úr leiklistar- og dansdeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og hefur verið afkastamikill síðan.

 Hann hefur leikið í Þjóðleikhúsinu í Vesalingunum, Leitinni að jólunum, Bjart með köflum, Lé konungi, Ballinu á Bessastöðum, Karma fyrir fugla, Dýrunum í Hálsaskógi og Macbeth. Hann var einnig aðstoðarmaður leikstjóra í Finnska hestinum og Hreinsun. Þá hefur Hilmir leikið með sjálfstæðum leikhúsum t.a.m í Gálmu og Ég er vindurinn hjá leikhópnum Sóma þjóðar og í Spuna eða Kamelljóni fjárhirðisins í Skemmtihúsinu. Einnig hefur sést til Hilmis á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi. Þar má nefna Bjarnfreðarson, Hlemmavideo og Makalaus.

 Hilmir leikur nú í Hvörfum í uppsetningu Lab Loka í samstarfi við Þjóðleikhúsið.

Ingibjörg Huld Haraldsdóttir, útskrifaðist vorið 2011 úr Fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands. Hún steig sín fyrstu skref sem leikstjóri í útskriftarverkefni sínu Spuni eða Kamelljón fjárhirðisins eftir Eugene Ionesco og setti einnig upp Ég er vindurinn eftir Jon Fosse í Þjóðleikhúskjallaranum 2012. Hjá Leikfélagi Akureyrar á næstkomandi leikári mun hún leikstýra Sek, nýju verki eftir Hrafnhildi Hagalín sem frumsýnt verður í október, sinna starfi aðstoðarleikstjóra í Gullna hliðinu sem frumsýnt verður hjá LA um miðjan janúar 2014.

Nýjast