Dagskráin 29. janúar - 5. febrúar - Tbl 4
Endurbætur standa yfir á Lögmannshlíðarkirkju
„Þetta tókst afskaplega vel og það er greinilegt að fólki hér í hverfinu, m.a. gömlu þorpurunum þykir vænt um kirkjuna,“ segir Arnar Yngvason umsjónarmaður í Glerárkirkju og Lögmannshlíðarkirkju.
Viðgerð stendur yfir á þeirri síðarnefndu og stendur yfir söfnun til að hægt sé að ljúka verkinu. Einn liður í þeirri söfnun var að bjóða upp á kraftmikla kjötsúpu í hádeginu á bóndadaginn þar sem tekið var við frjálsum framlögum. Arnar segir að vel hafi verið tekið í hugmyndina. Fjölmenni mætti á samkomuna og átti góða stund yfir kjötsúpu auk þess sem boðið var upp á smakk af sviðasultu, pungum og hákarli í tilefni dagsins.
Predikunarstóll á nýjan stað
Framkvæmdir hafa staðið yfir við Lögmannshlíðarkirkju í um það bil eitt og hálft ár, en Arnar segir að gólf hafi verið farið að síga í norðausturhorni kirkjunni og ákveðið að stoppa það áður en í óefni kæmist. „Við unnum þetta verk innan frá og gátum því verið að í fyrravetur. Verkið gekk vel og það náðist að stöðva sigið. Nú er svo komið að lokið hefur verið við að slípa gólf kirkjunnar og Snorri Guðvarðarson hefur listilega málað loftið í kirkjunni og veggi, en það eru margvísleg verkefni eftir,“ segir hann og nefnir m.a. að nú þurfi að koma bekkjum fyrir í kirkjunni, til stendur að koma predikunarstól fyrir á nýjum stað þannig að hann njóti sín betur og eins sé eftir frágangur á lóð svo eitthvað sér nefnt.
Ekki of seint að styrkja
Lögmannshlíðarkirkja var reist árið 1860. Allar framkvæmdir við hana eru gerðar í samráði við Minjastofnun og hafa fengist styrkir úr Húsfriðunarsjóði sem stofnunin hefur yfir að ráða. Arnar segir að enn vanti upp á að endar náist saman og því hafi verið ákveðið að kanna vilja nær samfélagsins um að leggja hönd á plóg svo hægt verði að ljúka verkinu. „Mæting var góð og greinilegt að fólki í sókninni vill taka þátt,“ segir Arnar og bætir við að ekki sé of seint að styrkja verkefnið. Fyrir þá sem vilja leggja málefninu lið og styrkja framkvæmdir í Lögmannshlíðarkirkju fylgir hér reikningsnúmer og kennitala; kt. 450269-2479 og reikningur: 566-26-25