Dagskráin 29. janúar - 5. febrúar - Tbl 4
Sala Húsavíkurgjafabréfa eykst á milli ára
Á stjórnarfundi Húsavíkurstofu fyrir skemmstu var farið yfir uppgjör á sölu á Húsavíkurgjafabréfunum sem hafa notið vinsælda í jólapökkum Húsavíkinga undanfarin ár en salan bréfanna hefur aukist á milli ára.
Sala á Húsavíkurgjafabréfum endaði í 16,3 mkr. samanborið við 15,95 mkr. árið 2023 en sölutímabilið miðast við 1. ágúst - 31.des. Í fundargerð segir að þátttaka stærstu fyrirtækjanna í Norðurþingi hafi verið mjög góð enda sé það algjör forsenda þess að bréfin haldi áfram í framleiðslu.
„Stjórn Húsavíkurstofu lýsir yfir mikilli ánægju með sölutölur Húsavíkurgjafabréfa 2024. Fjárfesting í bréfunum tryggir beina innspýtingu í hagkerfið í Norðurþingi og óhætt að segja að flóran sé fjölbreytt þegar kemur að því að leysa gjafabréfin út,“ segir í fundargerðinni