Viðvörun vegna veðurs

Súlur björgunarsveitin á Akureyri sendi frá sé áminningnu til okkar í morgun og er full ástæða til þess að deila skrifum þeim hér þvi góð vísa er aldrei of oft kveðin.

,,Það hefur sennilega ekki farið fram hjá mörgum að viðvaranir vegna veðurs hafa verið gefnar út fyrir allt landið. Veðrið hér á svæðinu verða allskonar næstu daga miðað við spána. Það verður hvasst á köflum og hlýnar um tíma. Það er því varað við hálku, foki og vatnssöfnun.

 
Við hvetjum fólk því til að athuga hvort niðurföll séu nokkuð stífluð og huga að lausamunum (enn einu sinni). Ferðaveður getur verið varasamt fyrir bíla sem taka á sig mikinn vind en þar sem hætt er við hálku á þetta við alla bíla. Hægt er að fylgjast með veðri og veðurspá á www.vedur.is og færð og veðri á www.umferdin.is "
 
Svo mörg voru þau orð og við skulum hafa þau i huga.

 

Nýjast