Listasafnið á Akureyri: Nýtt sýningaár formlega hafið

Frá kynningarfundinum í gær
Frá kynningarfundinum í gær

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri í gær var dagskrá ársins 2025, ný árbók og komandi starfsár kynnt. Einnig var formlega tilkynnt um útgáfu sérstakrar bókar um sýningaröðina Sköpun bernskunnar, þar sem skólabörn og starfandi listafólk leiða árlega saman hesta sína í Listasafninu. Árbók safnsins er nú öllum aðgengileg og gjaldfrjáls í anddyri safnsins auk valdra staða á Akureyri.

Sýningaárið hafið með opnun þriggja nýrra sýninga

Sýningaár Listasafnsins hófst með pompi og prakt um síðastliðna helgi þegar fjöldi fólks sótti opnun á sýningum Huldu Vilhjálmsdóttur, Kristjáns Guðmundssonar og Þórðar Hans Baldurssonar og Þórunnar Elísabetar Sveinsdóttur. Á meðal annarra listamanna á árinu eru Óli G. Jóhannsson, Þóra Sigurðardóttir, Bergþór Morthens, Margrét Jónsdóttir, Jóhannes S. Kjarval, Emilie Palle Holm og James Merry. Auk þess verða fastir liðir á dagskrá eins og A! Gjörningahátíð, Sköpun bernskunnar, samsýning norðlenskra myndlistarmanna og dansvídeóhátíðin Boreal. Einnig er vert að geta sýndarveruleika innsetningarinnar Femina Fabula sem verður opnuð í lok september og er blanda af hugmynda- og gjörningalist, innsetningu og myndlist. Sýningin er afrakstur þriggja ára samvinnu listamannanna Andro Manzoni og Áka Frostasonar.

Samtal við samfélagið mikilvægt

„Listasafnið á Akureyri leggur ríka áherslu á að ná til sem flestra hópa samfélagsins og mögulegt er,“ segir Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri. „Við viljum útvíkka samtalið við samfélagið enn frekar og styðja við fjölbreytni. Aldurstengd mismunun, geðheilsa, uppruni, umhverfisvá, kyn og kynvitund eru aðeins nokkur þeirra málefna sem eru í brennidepli og við munum láta okkur varða á árinu 2025. Markmið okkar er að skapa fjölbreytt rými með listamönnum, þar sem við getum tekið þátt í umræðum um þau hitamál sem snerta þjóðfélagið beint og óbeint.“

Bók um Sköpun bernskunnar

Á fundinum var kynnt útgáfa á bók um sýningaröðina Sköpun bernskunnar, sem sett hefur verið upp á Listasafninu frá 2015. Að sögn Heiðu Bjarkar Vilhjálmsdóttur, verkefnastjóra fræðslu og miðlunar, er tilgangur sýningarinnar að gera verkum barna hátt undir höfði og áhersla lögð á að listrænt samtal eigi sér stað á milli þeirra og myndlistarfólksins sem tekur þátt í sýningunni hverju sinni. „Árið 2020 hlaut verkefnið Öndvegisstyrk Safnasjóðs til þriggja ára. Sá styrkur var mikilvæg hvatning sem leiddi til þess að hægt var að þróa verkefnið og sýningarnar enn frekar ásamt því að gefa út þessa glæsilegu bók um verkefnið. Í bókina skrifar AlmaDís Kristinsdóttir, doktor í safnafræði og safnstjóri Listasafns Einars Jónssonar, fræðigrein undir heitinu Gleði, birta, hamingja: Valdeflandi fræðslustarf Listasafnsins á Akureyri. Þar rýnir hún m.a. í þetta langtíma verkefni og setur í fræðilegt samhengi. “

Fræðslustarfið mikilvægt sem fyrr

Þriðjudagsfyrirlestrar Listasafnsins hefja göngu sína að nýju 4. febrúar næstkomandi með fyrirlestri grafíska hönnuðarins Antons Darra Linden Pálmarssonar. Um er að ræða samstarfsverkefni Listasafnsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins. Fyrirlestrarnir eru sem fyrr haldnir á þriðjudögum kl. 17-17.40 yfir vetrartímann. Að venju verður fræðslustarf Listasafnsins fyrirferðarmikið þar sem m.a. verður boðið upp á almenna leiðsögn, fjölskylduleiðsögn, smiðjur og vinnustofur.

Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings. Rekstrarkostnaður safnsins greiðist úr bæjarsjóði í samræmi við fjárhags- og starfsáætlun ár hvert. Safnið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Bæjarráð myndar stjórn Listasafnsins á Akureyri. Listasafnið á Akureyri er viðurkennt safn og fær stuðning frá Safnaráði.

 

 

Nýjast