Grófin Geðrækt komin í nýtt húsnæði

Ánægja er með nýtt húsnæði við Hafnarstræti 97 sem Grófin Geðrækt hefur nú til umráða. Opið hús var …
Ánægja er með nýtt húsnæði við Hafnarstræti 97 sem Grófin Geðrækt hefur nú til umráða. Opið hús var á dögunum þar sem hægt var að kynna sér starfsemina.

Grófin Geðrækt flutti í nýtt húsnæði í nóvember á liðnu ári eftir að upp kom mygla í húsnæðinu þar sem hún áður var. Einstaklingar voru farnir að finna fyrir miklum einkennum vegna mylgunnar og því bráðnauðsynlegt að koma starfseminni fyrir á nýjum stað hið fyrsta. Nýverið var opið hús á nýja staðnum sem er ekki ýkja langt frá þeim fyrri, en nú hefur Grófin Geðrækt komið sér vel fyrir við Hafnarstræti 97, á efstu hæð hússins og hægt að koma þar að hvort heldur sem er með lyftu frá göngugötunni eða fara um Gilsbakkaveg.

Sonja Rún Sigríðardóttir verkefnastjóri hjá Grófinni segir nýja húsið heldur stærra en það sem flutt var úr, eða tæpir 400 fermetrar. „Rýmið nýtist vel og rúmar margs konar starfsemi,“ segir hún. Tvö fundarherbergi eru á staðnum, tvö virkniherbergi og hvíldarherbergi, ásamt fjölnota herbegi sem meðal annars er notað sem tónlistarrými og þá eru þar einnig skrifstofur starfsmanna. Einnig leigir Grófin út skrifstofu til NPA þar sem einn starfsmaður er að störfum og sinnir Norðurlandi.

Aukinn kostnaður

„Við erum í góðu húsnæði og það er mjög ánægjulegt. Það er þó rétt að taka fram að við flutninginn fjórfaldaðist sú upphæð sem við þurfum að greiða í leigu á hverjum mánuði. Við erum að greiða rétt tæpar 10 milljónum króna meira á ári en var og það setur rekstrinum afar þröngar skorður. Það er því ljóst að róðurinn verður þungur fyrir Grófina á meðan við erum í þessu húsnæði. Það er áfram unnið að því að koma starfseminni fyrir í ódýrara húsnæði en ljóst við svona verður staðan hjá okkur næstu 12 til 18 mánuði,“ segir Sonja Rún.

Fjölbreytt starfsemi

Grófin er eina opna geðræktarmiðstöðin utan höfuðborgarsvæðisins og hefur aðsóknin farið vaxandi Fólk víða að kemur þar við, frá Akureyri, Eyjafjarðarsvæðinu öllu og héðan og þaðan af Norðurlandi en alls eru heimsóknir um 5500 á ári. Virkir þátttakendur eru á bilinu 80 til 140 manns, eftir árstíma. Grófin hefur verið starfandi frá árinu 2013.

Lausa skrúfan

Nýju verkefni verður hrundið af stað nú í febrúar, Lausu skrúfunni en andvirði á sölu skrúfunnar verður varið til að standa straum af auknum húsnæðiskostnaði. Febrúar á að verða árlegur vakningamánuður um geðrækt, mánuður Lausu Skrúfunnar.

„Í framhaldinu sjáum við vonandi fleiri lágþröskulda, geðúrræði norðan heiða koma til með að vinna saman að einu markmiði gegnum "Lausu Skrúfu verkefnið" því það vantar sannarlega að fjölga úrræðum fyrir þá sem á þurfa að halda, svo fólki þurfi ekki að flytja búferlum til að geta sótt slíka þjónustu,“ segir Sonja Rún.

 

Nýjast