Norðurorka - Ný og stærri dæla sett upp á Reykjum

Vara borholan Mynd á vefsíðu Norðurorku
Vara borholan Mynd á vefsíðu Norðurorku

Ný og stærri dæla var á dögunum sett upp á vinnslusvæðinu á Reykjum í Fnjóskadal. Hún eykur dælugetuna og þar sem afhendingaröryggi veitunnar sem er með lengri hitaveitum landsins.

Samhliða uppsetningu nýrrar dælu var nauðsynlegt að stækka rafmagnstöfluna, því stærri dælu fylgir aukin rafmagnsnotkun. „Í heildina er um að ræða stóra og tímafreka aðgerð sem heppnaðist vel og þeir dagar sem liðnir eru frá gangsetningu gefa góð fyrirheit,“ segir í frétt á vef Norðurorku.

Norðurorka hefur frá árinu 2007 rekið hitaveitu í Fnjóskadal og Grýtubakkahreppi, Reykjaveitu. Á vinnslusvæðinu á Reykjum í Fnjóskadal eru tvær borholur sem hafa verið virkjaðar og þaðan liggur 54 km lögn til Grenivíkur.

Áskoranir að reka langa hitaveitu

Áskoranir fylgja því að reka langa hitaveitu. Mikill hæðamismunur er á lögninni sem fer frá því að vera í 230 m hæð á Reykjum og niður að sjávarmáli við Grenivík auk þess sem notendur á leiðinni eru í ólíkri hæð. Við aðstæður sem þessar verður þrýstifall sem gerir rekstur veitunnar erfiðan við mikla notkun.

Dælustöðin á Hróarstöðum, sem byggð var árið 2021, hefur skilað góðum árangri og jafnað þrýsting í köldu veðri. Með nýrri dælu á Reykjum eykstð enn frekar afhendingaröryggi veitunnar en þó er ljóst að verkefnum Reykjaveitu er síður en svo lokið.

Nýjast