Hilda Jana með hlaðvarpsþætti um byggðamál

Hilda Jana Gísladóttir.
Hilda Jana Gísladóttir.

Komin er út þriggja þátta hlaðvarpssería um byggðamál sem Hilda Jana Gísladóttir, fjölmiðlakona og bajarfulltrúi á Akureyri gerði. Þættina gerði Hilda Jana í tengslum við meistaranám sitt  í blaða- og fréttamennsku sem hún lauk í vor. Þættirnir heita Rígurinn: frá brothættum byggðum til borga.

Rígurinn fjallar um byggðamál á Íslandi og þann undirliggjandi byggðaríg sem þar er að finna. Ríg á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggða, ríg innan landshluta og á milli landshluta. Fjallað er um sögulegt samhengi íslensks byggðarígs, rýnt í stjórnmál, menningu, jafnréttismál, verkalýðsbaráttu, menntun, samgöngumál, ólík viðhorf eftir búsetu og tekjum svo eitthvað sé nefnt. Markmið þáttanna er að vekja áhuga á byggðamálum og veita hlustendum tækifæri til að velta þeim fyrir sér út frá sjónarhornum ólíkra byggða, allt frá vaxtarsvæðum til brothættra byggða.

Þættirnir eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitum eins og Spotify:

 

Nýjast