Helgi- og ljóðastund í Davíðshúsi

 Sá einn er skáld, sem þögull getur þráð, og þakkað guði augnabliksins náð.

 

Þannig orti Davíð Stefánsson í Kvæðinu til fuglanna. Í mörgum ljóða skáldsins frá Fagraskógi er að finna trúarleg stef, trúarglímu og andlega leit, en líka trúartraustið sem ber andann uppi á náðarstund í návist guðs, eins og Davíð orðar það sjálfur í sama kvæði.

Á sunnudegi í verslunarmannahelgi, sem að þessu sinni ber upp á 4. ágúst, er boðið upp á helgi- og ljóðastund í Davíðshúsi á Akureyri kl. 11. Listafólkið Birkir Blær, Eyþór Ingi Jónsson og Rakel Hinriksdóttir flytja ljóð Davíðs Stefánssonar í tali og tónum. Sr. María G. Ágústsdóttir leiðir stutta íhugun út frá kvæðum Davíðs. Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir annast meðhjálparastörf og Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri, opnar húsið.

Davíð Stefánsson á einn sálm í sálmabók þjóðkirkjunnar sem ber heitið Á föstudaginn langa og óhætt er að segja að við þekkjum flest með lagi Guðrúnar Böðvarsdóttur. Í eldri sálmabókum voru fimm erindi þessa magnaða trúarljóðs en átta erindi eru birt í nýju sálmabókinni. Þar á meðal er þetta:

Þú ert hinn góði gestur
og Guð á meðal vor,
og sá er bróðir bestur
sem blessar öll þín spor
og hvorki silfri safnar
né sverð í höndum ber
en öllu illu hafnar
og aðeins fylgir þér.

 

Um listafólkið:

Birkir Blær er 24 ára tónlistarmaður frá Akureyri en hann hefur verið búsettur í Stokkhólmi undanfarin ár. Hann er söngvari, lagasmiður, hljóðfæraleikari

Birkir Blær

og pródúsent. Hann vill ekki festa tónlistina sína í einum ákveðnum flokki, heldur fær hann innblástur úr öllum áttum en allra helst frá soul, blues og r&b. Birkir er reyndur tónlistarmaður, hann hefur haldið ótal tónleika og komið fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónlistarhátíðum. Hann hefur gefið út tónlist sem hefur nú verið streymt tæplega 6 milljón sinnum á Spotify. Hann er sennilega þekktastur fyrir að hafa unnið sænsku Idol keppnina árið 2021. Birkir starfar nú sem tónlistarmaður bæði á Íslandi og í Svíþjóð.


 

Eyþór Ingi Jónsson er auk þess að vera organisti við Akureyrarkirkju, freelance tónlistarmaður við fjölbreytt tónleikahald og stjórnandi Hymnodiu.

Eyþór

 

Hann stundar einnig náttúruljósmyndun, fuglamerkingar og fræðslu um fugla af mikilli ástríðu.


 

Rakel Hinriksdóttir fæddist á Húsavík og ólst upp á Laugum í Reykjadal. Rakel er með menntun í grafískri hönnun frá University of Bridgeport USA.

Hinriksdóttir

 

Hún útskrifaðist frá Mennaskólanum á Akureyri. Rakel er fjölmiðlakona, skáld og listakona og hefur unnið að gerð spjallþátta fyrir N4 á Akureyri. Hún vinnur nú að félagsstörfum fyrir öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri. Rakel býr á Eyrinni á Akureyri með tveimur sonum sínum og tveimur kisum og hefur gefið út 3 ljóðabækur. Fyrsta bókin hennar kom út árið 2020 hún heitir Aðstandandi. Þar yrkir hún um þá sáru reynslu hvernig það er að missa sinn nánasta. Tveimur árum seinna kom út ljóðabókin Andlega algebra og 2023 ljóðabókin Hringfari.


 

María Guðrúnar. Ágústsdóttir starfar sem prestur í Glerárkirkju frá 1. ágúst til áramóta.

María Guðrúnar

 

Hún hefur þjónað á ýmsum stöðum í Reykjavík frá því hún vígðist til prests fyrir rúmum 30 árum, síðustu sjö árin í Grensáskirkju og Fossvogsprestakalli. María ólst upp í Skagafirði og er komin til Akureyrar til að vera nálægt syni sínum og tengdadóttur sem eignuðust sitt fyrsta barn fyrr á þessu ári. Á bernskuheimili hennar hljómaði oft rödd Davíðs Stefánssonar af hljómplötu í eigu föður hennar, síra Ágústar M. Sigurðssonar sem var alinn upp á Möðruvöllum í Hörgárdal. Davíð var góðvinur foreldra hans og gisti oft á prestsetrinu.


Athugasemdir

Nýjast