Haustdagar grunnskólanna við Eyjafjörð í Háskólanum á Akureyri
Haustdagar grunnskólanna voru haldnir 13. og 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri, þar kom saman starfsfólk og stjórnendur úr 16 grunnskólum á svæðinu. Haustdagarnir hafa aldrei verið fjölmennari en um 300 kennarar, stjórnendur og starfsfólk grunnskóla tóku þátt.
Aðalerindi fluttu Aðalheiður Sigurðardóttir, Linda Rós Rögnvaldsdóttir og Bergþóra Þórhallsdóttir. Aðalheiður setti ráðstefnuna með erindi um erfiða hegðun og hvað liggur að baki henni, Aðalheiður fjallaði um hvernig hægt er að fyrirbyggja og mæta nemendum í tilfinningalegu uppnámi og gaf praktísk ráð og innblástur að kærleiksríkri tengslamyndun og betri skóladegi.
Linda Rós hóf seinni daginn með því að segja frá vinnu starfshóps sem unnið hefur að því að kortleggja, greina og draga úr skólaforðunarvanda meðal nemenda á grunnskólastigi á Akureyri. Linda fjallaði m.a. um tillögur starfshópsins að verkferlum og gögnum sem styðja við góða skólasókn nemenda. Í kjölfarið fjallaði Bergþóra um hvernig Kópavogsbær hefur unnið að námskrá í stafrænu læsi og sagði frá verkefninu Vitundin sem snýr að fræðslu í stafrænu læsi og stafrænni borgaravitund en verkefnið miðar að því að aðstoða nemendur við að fóta sig í stafrænum heimi.
Að aðalerindum loknum bauðst stafsfólki skólanna að taka þátt í fjölbreyttum starfsþróunarnámskeiðum. Boðið var upp á 34 námskeið þar sem m.a. var hægt var að hanna og skapa í Fablab smiðju, fræðast um íþróttir og hreyfingu, læra að nýta leiki og náttúru í skólastarfi, kynna sér heimilisfræði og næringu, fá hugmyndir um hvernig hægt er að kenna efnafræði í eldhúsinu, eflingu í móttöku nemenda af erlendum uppruna og margt fleira.
Frábærir dagar að baki þar sem kennarar, stjórnendur og starfsfólk í grunnskólum Eyjafjarðar fengu tækifæri til að hittast, deila reynslu sinni og stilla saman strengi. Miðstöð skólaþróunar og undirbúningsteymi Haustdaga grunnskólanna vonast til að viðburðurinn hafi veitt þátttakendum innblástur sem mun nýtast í starfi með nemendum á komandi skólaári og þakkar þátttakendum fyrir góða og gefandi samveru.
Miðstöð skólaþróunar er starfrækt við hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri og er markmið hennar að stuðla að umbótum og umbreytingum á skólastarfi og vera farvegur þekkingar og þróunar út í daglegt skólastarf.