Háskólinn á Akureyri vill vera leiðandi í gervigreind

Magnús Smári Smárason til vinstir, Gísli Ragnar Guðmundsson. til hægri
Magnús Smári Smárason til vinstir, Gísli Ragnar Guðmundsson. til hægri

Það hefur ekki farið fram hjá neinum hve mikið pláss gervigreindin er farin að taka. Einhverjir óttast gervigreindina en aðrir sjá tækifærin sem í henni felast og á það svo sannarlega við um Háskólann á Akureyri. Stúdentar og starfsfólk hafa verið að nýta gervigreindina í sínum störfum og hefur Kennslu- og upplýsingamiðstöð Háskólans á Akureyri (KHA) meðal annars staðið reglulega fyrir fyrirlestrum og vinnustofum sem snúa að gervigreind. Þriðjudaginn 3. desember sl. fékk starfsfólk góða heimsókn frá Gísla Ragnari Guðmundssyni sem starfar sem sérfræðingur í gervigreind hjá Háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Gísli átti fundi með sérstökum einingum skólans auk þess sem hann hélt erindi og vinnustofu þar sem starfsfólk fjölmennti. Gísli leiddi vinnuna að aðgerðaráætlun Íslands um gervigreind og fór meðal annars yfir hana, tækifærin sem felast í gervigreindinni, gagnleg tól og hvernig er hægt að nýta gervigreindina til sóknar í námi og rannsóknum frekar en að líta á hana sem ógn eða hindrun.

Verkefnastjóri í gervigreind hefur störf við HA í janúar

Magnús Smári Smárason hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóra í gervigreind. Starfið er til tveggja ára og mun Magnús hefja störf í byrjun janúar 2025. Aðalverkefni Magnúsar verður að stýra innleiðingu og þróun gervigreindar innan háskólans, með sérstakri áherslu á fræðslu, ráðgjöf og mótun stefnu í tengslum við þessa byltingarkenndu tækni.

Magnús mun leiða verkefni sem efla nýtingu gervigreindar innan háskólans með því að styðja stoðþjónustu og akademískt starfsfólk við að nýta tæknina í störfum sínum, auk þess að sjá um fræðslu og skipulag námskeiða fyrir starfsfólk og stúdenta. Þá verður hann í forsvari fyrir mótun og innleiðingu gervigreindarstefnu skólans í samvinnu við stjórnendur, starfsfólk og stúdenta skólans.

HA tekur stórt skref inn í framtíðina með tímamótaráðningu

Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA segir að ráðning Magnúsar séu tímamót fyrir Háskólann á Akureyri. „Gervigreindin er þegar farin að hafa áhrif í háskólum og er líkleg til að umbylta menntun, störfum og rannsóknum. Því er mikilvægt fyrir starfsfólk og nemendur að læra hvernig er hægt að nýta sér þessa tækni, sem og takmarkanir gervigreindarinnar,“ segir Áslaug.

„Með þessari ráðningu er HA að taka stórt skref inn í framtíðina með því að móta gervigreindarstefnu fyrir Háskólann á Akureyri sem miðar að því að valdefla og styðja starfsfólk og stúdenta skólans að nýta sér gervigreind í námi og starfi,“ segir Dr. Auðbjörg Björnsdóttir forstöðumaður KHA.

Magnús hefur ástríðu fyrir gervigreind og hefur meðal annars sótt námskeið í gervigreind og gagnavísindum hjá University of Oxford og starfað með Erdos Research Labs, sem miðar að því að endurhugsa menntun með tilliti til gervigreindar. Magnús hefur víðtæka reynslu af kennslu og þróun námskeiða og hefur nýtt þá þekkingu til að setja upp námskeið og fyrirlestra um gervigreind og hefur skrifað fjölda pistla um samfélagsleg áhrif tækninnar. Þá er Magnús með meistarabréf í múriðn, með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og stundar meistaranám í sama fag

Nýjast