Háskóladagurinn stafrænn annað árið í röð

Háskólinn á Akureyri. Mynd/unak.is
Háskólinn á Akureyri. Mynd/unak.is

Stafrænn háskóladagur verður haldinn 26. febrúar kl. 12-15. Þá gefst áhugasömum tækifæri til að kynna sér allt háskólanám sem er í boði á landinu á einum vettvangi. Á vefsíðunni www.haskoladagurinn.is gefst einstakt tækifæri til að leita í öllum námsleiðum sem eru í boði í íslenskum háskólum. Greint er frá þessu á vef Háskólans á Akureyri.

Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða tilbúnir til að spjalla við gesti dagsins í netspjalli. Það verður hægt að komast í beint samband við fulltrúa frá öllum námsleiðum í grunnnámi háskólanna og um að gera að nýta tækifærið og spyrja um hvaðeina sem lýtur að drauma náminu og eiga samtal um námsleiðirnar og háskólalífið.

Líkt og í fyrra var tekin ákvörðun um að halda daginn ekki með hefðbundnum á hætti á staðnum heldur stafrænan. Er það gert í ljósi ástandsins í samfélaginu. Með þessu móti er hægt að bjóða öllum áhugasömum í netspjall við starfsfólk háskólana og tryggja aðgengi fyrir öll þau sem hafa áhuga á að kynna sér úrvalið hjá íslensku háskólunum.

„Við erum rosalega ánægð með virkni leitarvélarinnar á síðunni enda er þetta í fyrsta skiptið á Íslandi þar sem áhugasömum um háskólanám gefst tækifæri til að leita að námi í öllum háskólum landsins,“ segir Sigrún Einarsdóttir, verkefnastjóri Háskóladagsins.

 

Nýjast