Götulokanir um verslunarmannahelgi

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina og þá verður einnig efnt til fjallahlaupsins Súlur Vertical á föstudag og laugardag.

Af þessum sökum verður nokkuð um tímabundnar lokanir gatna til að tryggja öryggi gesta og þeirra sem taka þátt í viðburðunum. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Um er að ræða nokkuð umfangsmiklar lokanir á miðbæjarsvæðinu og suður að Leiruveg vegna Einnar með öllu en lokanir vegna Súlur Vertical verða einvörðungu laugardaginn 3. ágúst frá kl. 11.00-18.00 eða þar til síðustu keppendur hafa hlaupið hjá (sjá meðfylgjandi kort).

lokun gatna

frekari lokanir

 

 

Athugasemdir

Nýjast