20. nóvember - 27. nóvember - Tbl 47
Götuhornið
Á götuhorninu var verið að ræða ófærð og ítrekaðar lokanir á Reykjanesbraut með tilheyrandi óþægindum fyrir ferðafólk svo ekki sé talað um tap ferðaþjónustunar sem hefur borið sig frekar dauflega vegna þessarar ótíðar.
Á horninu var fólk innilega sammála um að þrátt fyrir allt mættum við greinlega vel við una þegar kemur að snjómokstri á Akureyri þó oft á tíðum náum við nú ekki í nef okkar yfir þvi hvernig að sé staðið hér. ,,Ég hló skellihló og liklega brosi ég enn þegar ég hugsa úti það að einhver talsmaður hjá Reykjavíkurborg sagði stoltur ,,já við vorum með tvær vélar úti i alla nótt“. ,,Heilar tvær sko“ sagði konana og hló. Fólk á götuhorninu var á þvi að þannig vinnubrögð hefðu kallað á uppþot hér i bænum.
Hitt þótti ekki eins fyndið en nú vill forseti borgarstjórnar láta kanna með að leggja lestarteina og koma upp lestarsamgöngum milli Reykjavíkur og Keflavikurflugvallar, talar um að ekki sé lengur hægt að stigna höfðinu i sandinn! ,, Sandinn, frekar snjóskaflinn hefði ég nú haldið“ sagði einn óðamála. Hann bætti svo við. ,,Það er skotið á að kostnaður við slika framkvæmd gæti verið 100 til 200 milljarðar króna og ríkið á að splæsa“ . ,,Skulum hafa i huga að nýr Landsspítali mun líklega kosta u.þ.b 110 milljaða“.
Er ekki mun ódýrara, skilvirkara og fljótlegra að kaupa nú bara alvöru tæki til þess að moka Reykjanesbrautina og hefja mokstur í tima áður en vegurinn teppist af bílum sem fólk misvant vetrarakstri ekur?
Er ekki bara best að moka?