Götuganga Akureyrar fer fram á laugardaginn

Ræst verður á göngustígnum rétt sunnan við Hof, og þar er einnig endamarkið
Ræst verður á göngustígnum rétt sunnan við Hof, og þar er einnig endamarkið

Götuganga Akureyrar verður haldin laugardaginn 12. október kl. 13. Þetta er í annað sinn sem gangan er haldin og í ár er hún opin fyrir alla aldurshópa.

Frítt er í gönguna og tilvalið fyrir göngugarpa bæjarins að hittast og ganga saman tæplega 5 km leið meðfram Pollinum.

Gengið verður í suðurátt frá Hofi og snúið við þegar leiðin er hálfnuð og gengið til baka. Brautarverðir verða á leiðinni til að leiðbeina þátttakendum og hvetja þá til dáða.

Athugið að öll sem vilja fá tíma sinn skráðan verða að vera með keppnisnúmer framan á sér þegar þau koma í mark.

Skráning og nánari upplýsingar á vefsíðu UFA. 

 

Nýjast