13.nóvember - 20.nóvember - Tbl 46
Göngugatan lokuð fyrir bílaumferð vegna veðurs
Hitabylgja er nú á Akureyri og því hefur verið ákveðið að loka göngugötunni fyrir umferð vélknúinna ökutækja fyrr en ráð var fyrir gert. Götunni verður lokað fyrir bílaumferð frá kl. 13 í dag og síðan tekur við júlílokun sem er alla daga frá kl. 11-17. Í ágúst er göngugatan lokuð fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá kl. 11-17.
Vörumóttaka er ætluð utan þessa tíma. Aðkoma fyrir ökutæki fatlaðs fólks að göngugötunni er að norðan, frá Brekkugötu. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.