Góð himnasending til VMA
Rafdeild Verkmenntaskólans á Akureyri fékk góð gjöf á dögnum þegar Jón Ólafur Halldórsson vörustjóri og Kári Kolbeinsson deildarstjóri hjá Smith & Norland komu í heimsókn í skólann og færðu deildinn að gjöf tuttugu stýrikassa, sem nýtast afar vel í kennslu í stýringum.
Guðmundur Geirsson kennari í rafiðngreinum segir á vef VMA það hafa verið mikla og góða himnasendingu að fá þessa stýrikassa frá Smith & Norland. Þeir nýtist sérstaklega vel í áfanganum Raflagnir 5, næst síðasta raflagnaáfanganum í náminu í rafvirkjun, en þar er farið í eitt og annað sem tengist raflögnum og töflusmíði. Rafdeild átti tíu slíka skápa en Smith & Norland gaf henni tuttugu kassa til viðbótar. Þetta segir Guðmundur að breyti öllu í kennslunni því í stórum námshópum geti nú allir nemendur unnið með sinn stýrikassa.
Jón Ólafur þekkir sérstaklega vel til rafdeildar VMA því auk þess að starfa hjá Smith & Norland er hann formaður sveinsprófsnefndar í rafvirkjun. Hann er því fastagestur í skólanum þegar verðandi rafvirkjar þreyta sveinspróf. Og næsta sveinspróf í rafvirkjun í VMA verður eftir rúma tvo mánuði, í byrjun febrúar 2025.