Gatnamót á Akureyri máluð rauð

Unnið að því að mála götuna rauða. Mynd/Akureyri.is
Unnið að því að mála götuna rauða. Mynd/Akureyri.is

Í dag hefur verið unnið að því að mála rauð gatnamótin við Oddeyrargötu og Brekkugötu. Greint er frá þessu á vef Akureyrarbæjar en þar er hægt að skoða fleiri myndir.

Endingagóðri rauðri málningu er hellt yfir malbikið og ofan í hana borið rautt kurl sem gerir fletina áferðarfegurri.

Þessari vinnu mun ljúka í dag og þá er vonast til að hægt verði að hleypa umferð á gatnamótin til frambúðar en þarna hefur verið lokað af og til síðustu vikurnar vegna vinnu við hellulagnir og gangbrautir.

Rauður litur á gatnamótunum er til marks um að við taki hverfi þar sem vélknúin ökutæki njóta ekki forgangs umfram aðra ferðamáta og er þar um svokallað "shared space" að ræða en slík afmörkun rólegri hverfa tíðkast víða erlendis og má til að mynda lesa um slíkt HÉR.

 


Athugasemdir

Nýjast